Leiðbeiningar


Verkefnin sem hægt er að sækja á þessari heimasíðu eru unnin fyrir fólk með fötlun. Þeim má breyta og nota á hvaða hátt sem viðkomandi hentar. Verkefnin verður að prenta út, það er ekki hægt að vinna þau í tölvunni. Undir flokknum Para og Tengja er verkefnaform sem hægt er að opna i Word og setja inn eigin myndir.

Allir þroskaþjálfar eru hvattir til að senda inn verkefni á síðuna...þannig að úr verði myndarlegt verkefnasafn.


Til að hægt sé að nota verkefnin oftar en einu sinni er mikilvægt að plasta þau í plöstunarvél. Þegar búið er að plasta verkefnin er hægt að skrifa á þau með glærupenna eða töflutússi. Glærupenna er hægt að þvo af með vatni en töflutúss næst af með þurri tusku eða töflupúða.


Tengiverkefni:
Prenta út og plasta. Hægt er að skrifa á verkefnin með töflu- og glærupennum.


Para saman verkefnin (með römmunum): Prenta út í tveimur eintökum. Plasta á bæði eintökin. Annað eintakið klippir maður út og límir grófan franskan rennilás aftan á hverja mynd. Hitt eintakið hefur maður sem spjald, á það límir maður fínan franskan rennilás, lítinn bút í hvern glugga og stóran renning aftan á spjaldið. Verkefnið er svo unnið þannig að í upphafi eru myndirnar sem klipptar voru út límdar aftan á spjaldið, á stóra renningnum, síðan tekur maður allar myndirnar af og parar þær saman við myndirnar framan á spjaldinu. Sniðugt er að geyma þessi verkefni í möppum (gata þau) og hafa myndirnar aftan á spjaldinu þannig að þau séu tilbúin til notkunnar.


Skriftar -og lestrarverkefni
: Prenta út og plasta. Hægt er að skrifa á verkefnin með töflu- og glærupennum.


Reikniverkefni
: Prenta út og plasta. Hægt er að skrifa á verkefnin með töflu- og glærupennum.


Ýmis verkefni: Prenta út og plasta. Annað landafræðiverkefnið er tengiverkefni, hitt landafræðiverkefnið er hugsað sem fróðleiksverkefni, þar sem para á fána við hvert land. Fánana á að klippa út og líma aftan á þá grófan franskan rennilás. Á hinum blöðunum er fróðleikur um viðkomandi land. Yfir nafnið á hverju landi á að líma bút af fínum frönskum rennilás. Verkefnið er svo unnið þannig að viðkomandi parar fána við land og les textan.


Flokkunarverkefni: Prenta út og plasta öll blöðin. Myndirnar með sjálfum herbergjunum á að nota sem spjöld. Hinar myndirnar eru klipptar út. Á spjöldunum eiga að vera litlir vasar fyrir myndirnar sem hægt er að útbúa með því að líma umslag framan á hvert spjald eða útbúa sjálfur vasa úr pappa eða einhverju öðru efni. Verkefnið er síðan unnið þannig að viðkomandi flokkar myndirnar eftir því hvaða spjaldi/herbergi þær tilheyra og setur myndina í vasan framan á spjaldinu.


Verkefni með söngtextum: Prenta út og plasta. Hægt er að vinna verkefnið á margan hátt. Til dæmis er hægt að hlusta á lögin og fylla inn í textan jafnóðum eða að vinna verkefnið með hliðsjón af forskrift.


Oft vinna þroskaþjálfar verkefni fyrir skjólstæðinga sína í forritinu Boardmaker. Því miður er ekki hægt að setja Boardmaker verkefni inn á síðuna nema hafa sérstakt leyfi.